Ég fer af og til á www.golfkennsla.is og ég verð bara að segja það að mér finnst þessi síða góð. Þarna getur maður athugað ýmislegt sem er að hrjá menn í golfinu. Þessi vefur er þarfaþing fyrir kylfing eins og mig. Ég mæli með því að kylfingar noti þennan vef sér til aðstoðar ef eitthvað er að golfinu þeirra. Einnig er þarna ýmis fróðleikur og ekki skemmir fyrir að núna getur maður prentað út greinar þær sem maður hefur áhuga á að eiga í möppunni sinni.