Með frábærum lokahring tryggði Davis Love sér sigur á The Players Championship. Love lék á -8 og endaði mótið á -17, sex höggum betri en næsti maður. Tiger Woods lék illa í mótinu og endaði í 11. sæti og þar með endar hans langa topp 10 sigurganga.

Þetta er þriðji sigur Love á árinu og hans annar sigur á þessu móti sem talið er það 5. stærsta á hverju ári.
——————-