Það verða þeir Tiger Woods og David Toms sem leika til úrslita í heimsmeistaramótinu í holukeppni í dag.
Í átta manna úrslitum í gær vann Woods Hoch 5/4, Scott vann Haas 2/1, Lonard vann Clarke 2/0 og Toms vann Kelly 4/3. Seinnipartinn í gær voru undanúrslitin leikin og þar vann Woods Scott 1/0 á 19. holu og Toms vann Lonard 1/0.
Úrslitaleikurinn hefst snemma dags enda eru leiknar 36 holur en leikurinn um þriðja sætið er 18 holur.
Catalyst Gaming d0ct0r_who