Mike Weir spilaði síðasta hringinn á 66 og endaði -9 undir pari, á sama skori og Charles Howell III, en vann á 2. holu í bráðabana. Tiger Woods endaði í 5.-6. sæti á -6 undir pari. Þetta er annar sigur Mike Weir í ár.

Mike Weir notaði nýja Titleist ProV1x boltann. Nú hafa öll mótin í ár á US PGA unnist með ProV1x boltanum fyrir utan eitt mót (Tiger vann með Nike bolta). Sigurvegararnir í ár sem unnið hafa með ProV1x eru: David Love III, Vijay Singh, Mike Weir og Ernie Els.
——————-