Sælt veri fólkið!

Ég er svoldið í golfi en get ekki sagt að ég sé einhver snillingur. Með 13 í forgjöf. Svo horfir maður á þessa gæja í sjónvarpinu og sér hvað maður er ands*** rosalega lélegur!!! Kannast einhver við þetta? Jæja..einhver…

Það sem mig langar að kanna hér er hvort einhver geti sagt mér muninn á 56 gráðu fleygjárni og öllu öðru þið vitið??? Bara allt í sambandi við stutta spilið því ég er alls ekki að fatta hvaða kylfur á að nota hvenær o.s.frv. Ef einhver gæti frætt mig um þetta væri það alveg geðveikt því ég er alveg að tapa mér hér…


p.s. ástæðan fyrir því að ég sendi þetta inn sem grein er af því að ég veit það af biturri reynslu að þetta fær meiri lesningu og þar af leiðandi fæ ég fleiri svör :)