Mig langaði bara að benda mönnum á hversu sterkur Ernie Els virðist vera í byrjun 2003 tímabilsins. Ég horfði á mikið af Mercedes mótinu á Kapalua vellinum á Hawaii hérna í USA og Els sannaði það hann er maðurinn sem gæti mögulega veitt Woods einhverja keppni.
Niðurstaðan var 8 högga sigur og samtals 31 undir pari. Nýtt met á PGA-tour, 2 höggum betra en gamalt met Calcavecchia frá Phoenix open 1999.
Magnaður sigur og það verður gaman að sjá hvað gerist þegar Tiger mætir til leiks eftir meiðslin.

Kveðja frá Nashville TN.
Mummi=:)