Colin Montgomerie er búinn að skrifa undir samning við Ben Hogan um kylfur fyrir næstu tímabil. Heyrst hefur að umboðsmaður hans hafi verið orðinn full gráðugur við Callaway og þannig hafi þeim samningum sem hann hafði við Callaway verið rift.
Ernie Els er farinn frá Taylor Made og er kominn yfir til Titleist. Hann skrifaði undir 5 ára samning við Acushnet sem er eigandi vörumerkjanna tveggja.
Einnig hef ég heyrt það að Sergio Garcia sé að fara að breyta um kylfur líka. Miðað við að hann er Adidas maður þá gæti ég trúað að hann sé að fara til Taylor Made.