Ég var að sjá það á heimasíðu Callaway (www.callawaygolf.com/ ) að þeir eru að fara að selja ný járn sem eiga að heita Callaway Golf Steelhead X-16 en það kun vera betri/nýrri útgáfa af af X-14 sem eru snilldar kylfur. Þetta verður þriðja týpan en “forfeður” hennar eru X-12 og X-14. Kylfurnar verða kynntar í byrjun janúar úti í Bandaríkjunum og ég mun hlakka til að prufa þær því eins og ég hef sagt áður þá er ég að fara að fá mér nýtt golfsett í sumar og gæti tímasetningin því varla verið betri. Með frétinni fylgdi ekki nógu góð mynd, hún var alltof stór og óljós þannig að þið getið bara kíkt inn á www.callawaygolf.com og séð sjálf. Ég vona inniega að þær verði ekki dýrar heldur en X-14, en mig minnir að X-14 hafi ekki verið dýrari heldur en X-12.

Með golfkveðju
bsk17