5. stigamót unglinga og það næstsíðasta í mótaröðinni var haldið um helgina 7-8. september. Það var sett glæsilegt nýtt vallarmet en það var 63 högg og það var Magnús Lárusson úr GKJ sem setti það og til gamans má geta að gamla vallarmetið átti Ottó Sigurðsson og það var 67 högg, Par vallarins er 70 högg.

Ég spilaði í mótinu og var alls ekki ánægður með völlinn, eins og flestir vita er þetta nýr völlur og það var verið að nýtyrfa og allt það. En það sem fór mest í taugarnar á mér var það nánast alltaf þegar maður hitti ekki braut þá var maður í “grund í aðgerð”………… Allur völlurin er grund. T.D. 11. holan, Allt nema grínið er grund þar sem allt í kringum það er nýtyrft. Þetta er kjaftæði, svo ekki sé talað um 15. holuna nokkuð skrítin par 4 hola, hún er 350 metrar eða svo, ef maður nær góðu drævi þá á maður kannski möguleika á að komast inn á grín en það er um 30 metrum hærra en brautin sjálf…… maður er kannski með gott 240- 250 drive, en þá er maður kannski með 4 járn eða trékylfu í innáhögg. Og það er ekkert lendingarsvæði, það er bara smá röffkantur og restin í kringum grínið er bara drulla sem er allt grund og um 80 % af þeim sem spiluðu hana slógu í grundina, en þá þarf að droppa 40 metra tilbaka og slá blindandi 50 metra högg með sand-wedge.

En úrslitin í mótinu voru svona:

16-18 ára KK: Magnús Lárusson GKJ 63-74=137
14-15 ára KK: Ólafur B. Loftsson NK 76-78=154
13 ára og yngri KK: Kristján Kristjánsson GK 80-81=161

16-18 ára KVK: Tinna Ó. Óskarsdóttir GKG 81-96= 177
14-15 ára KVK: María Ó. Jónsdóttir GA 82-80= 162
13 ára og yngri KVK: Þórunn Guðmundsdóttir GR 115-110=225
ég er ekki bara líffæri