Maraþon golf Miðvikudaginn 4. september léku Björgvin og Sveinn Sigurbergsson maraþongolf frá Keflavík til Hafnarfjarðar.

Golfið hófst kl. 8 á golfvelinum í Leirunni. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í reykjanesbæ ræsti þá af fyrsta teig í Leirunni og var hún leikin á venjulegan hátt.
Síðan léku þeir 16 risabrautir sem settar voru upp milli Leirunnar og Keilis og voru þær um 40 km. og hver braut um 3.5 km.

Björgvin og Sveinn skiptust svo á að slá bolta.
Ráðgert er að par á þessum (örugglega) lengsta golfvelli er 1494 en þeir fóru á nýu íslandsmeti og kannski heimsmeti og fóru völlin
á 734 högg undir pari.´

Þegar þeir komu að Straumsvík tók Lúðvík Geirsson á móti þeim og þeir léku 18. holu á Hvaleyravelli.

Um kl. 20:00 var orðið mjög mikið myrkur en þá kom einhver með sjálflýsandi kúlur og léku þeir leik með þeim.