Jamm það getur svo sem vel verið að blessaður drengurinn sé undrabarn í golfi. Undrabarn sem búið var til. Nú skulum við aðeins átta okkur á aðstæðum. Tiger Woods var aðeins tveggja ára þegar faðir hans, Earl Woods mætti með hann í sjónvarpsþátt og Tiger púttaði með Bob Hope. Þriggja ára gamall fór hann níu holur á 48 höggum!!! Ég og Tiger Woods erum jafngamlir og ég hef aldrei farið undir 50..but pratice makes perfect ekki satt. Tiger Woods er ekki bara undrabarn…hann er ótrúlegur, og ég meina það í fyllsta skilningi þess orðs.