Golfklúbbur Reykjavíkur, GR, verður í hlutverki gestgjafa á Landsmótinu í golfi árið 2001, sem verður hið fyrsta með nýju sniði. Þá verður leikið í einum opnum flokki, ólíkt flokkaskipta mótinu sem var við lýði í mörg ár. Þá hefur stjórn Golfsambands Íslands einnig ákveðið að Landsmót 2002 verði í höndum GHR, Golfklúbbs Hellu Rangárvöllum.