Golfklúbbar innan GSÍ geta nú tekið upp rástímaskráningu á www.golf.is. Ætla má að næsta vor muni margir klúbbar nýta sér þennan möguleika og bjóða bæði eigin félagsmönnum og félagsmönnum annara klúbba þann kost að skrá rástíma á internetinu.

Nú geta menn skoðað hvernig skráning á netinu lítur út og virkar. Nokkrir klúbbar hafa verið settir inn af handahófi.