Er golf íþrótt fyrir alla?
Golf er ekki með þeim allra ódýrustu íþróttum í heimi.
Einsog vitað er er hægt að kaupa náttúrulega byrjenda kylfur og ódýra golfskó og ódýran poka…en er það svo ódýrt! Ég myndi ekki segja það. Segjum að ungum hnokka langað að byrja í golfíþróttinni þarf hann að kaupa sér alla þessa hluti ásamt kúlum tíum o.s.fv.
Þetta er að minnsta kosti 15 þúsund krónur og fyrir venjulega fjölskyldu sem á ekki mikið af peningum er þetta rosalega mikið…Ég held að lækkun á verði á golfvörum ætti að eiga sér stað!