Örn Ævar Hjartarson, Golfklúbbi Suðurnesja, og Herborg Arnarsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur, urðu bæði Íslandsmeistarar í fyrsta sinn á Íslandsmótinu í höggleik, sem lauk fyrir skömmu á Grafarholtsvelli í Reykjavík. Herborg sigraði eftir þriggja holu umspil við Ólöfu Maríu Jónsdóttur úr Keili, sem virtist eiga sigurinn vísan er fjórar holur voru eftir en lék þær á fimm höggum yfir pari.

Örn Ævar lauk keppni á 288 höggum, fjórum yfir pari, og sigraði með þriggja högga mun. Herborg og Ólöf María léku hringina fjóra á 310 höggum, en í umspilinu lék Herborg þrjár holur á einu höggi undir pari á meðan Ólöf María var á fjórum yfir pari.

Keppnin í karlaflokki þróaðist á allt annan veg. Þar var spennan í algleymingi er fimm holur voru óleiknar hjá síðasta ráshópnum. Þá voru Örn Ævar og Ólafur Már Sigurðsson, Keili, jafnir, en heimamaðurinn Haraldur Heimisson var höggi á eftir. Þá gerðu þeir Ólafur og Haraldur báðir slæm mistök á meðan Örn Ævar lék af öryggi og hafði raunar heppnina með sér, vippaði í á fimmtándu braut.

Á hinn bóginn virtist allt stefna í þriðja sigur Ólafar Maríu á Íslandsmóti, en hún sigraði í fyrsta sinn í Grafarholti 1997, síðast þegar mótið fór þar fram. Þegar síðasti ráshópur kvenna lék fimmtándu holuna var munurinn á milli hennar og Herborgar fjögur högg. Þá sló Ólöf María í vatnstorfæru og lék holuna á sjö höggum, tveimur yfir pari. Sextándu holuna léku þær síðan báðar á fimm höggum.

Á sautjándu var Herborg nálægt því að fá fugl eftir gott pútt úr flatarkantinum, fékk öruggt par. Ólöf María var framan við flötina og vippaði vel að holu, var einungis um metra frá henni. Púttið misfórst hinsvegar og því var munurinn aðeins eitt högg þegar lokaholan ein var eftir.

Herborg var í betri stöðu eftir teighöggið, þar sem bolti Ólafar hafði rúllað út í brautarkantinn vinstra megin - í þykkt gras. Þaðan sló hún fremst á flötina, en holan var skorin á mjög erfiðan stað, aftast á efri stall flatarinnar. Herborg hitti efri stallinn í innáhögginu og var í prýðilegu færi á að ná fugli.

Ólöf María púttaði ágætlega upp brekkuna, en boltinn fór eilítið upp fyrir holuna og því átti hún óþægilegt pútt fyrir höndum, þótt það væri ekki ýkja langt. Herborg púttaði síðan fyrir fugli, en dró ekki að holu. Hún náði síðan pari með góðu pútti og því gat Ólöf María tryggt sér sigur af um eins metra færi.

En hallinn var mikill og boltinn sveigði framhjá holunni, hélt áfram ferðinni og nam ekki staðar fyrr en hann var kominn um tvo metra niður fyrir holuna. Þaðan varð Ólöf María að setja niður til að tryggja umspilið, sem hún og gerði, en tæpt stóð það.

Í umspilinu voru leiknar þriðja, sautjánda og átjánda hola vallarins. Strax á fyrstu holunni dró til tíðinda. Herborg sló rúma tvo metra frá holu í innáhögginu, en Ólöf María fór yfir flötina, nokkuð sem hún mátti alls ekki gera því þaðan var erfitt að vippa að holu. Ólöf María tapaði því höggi þar, en Herborg gerði sér lítið fyrir og setti púttið í fyrir fugli og tók strax tveggja högga forskot í umspilinu.

Á annarri holunni, eða þeirri sautjándu, tók hún einu járni minna en hún hafði gert í hefðbundnum leik skömmu áður og sló örugglega fremst á flötina. Ólöf María lenti hinsvegar í erfiðri stöðu hægra megin, gat ekki fundið nægilega góða fótstöðu í grjótinu þótt boltinn lægi þokkalega. Högg hennar var of stutt, náði ekki yfir sandgryfjuna hægra megin flatar. Í henni sló hún tvö högg og einpúttaði, lék holuna á fimm höggum, tveimur yfir pari. Herborg tvípúttaði og gekk því á átjándu brautina með fjögurra högga forskot, sem hún lét ekki af hendi og fagnaði fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum . . . og það á heimavelli frammi fyrir dyggum stuðningsmönnum sínum.

Á meðan Herborg fagnaði var Örn Ævar Hjartarson í þann mund að breikka bilið á milli sín og keppinautanna enn frekar. Eftir að Ólafur Már Sigurðsson hafði tapað fjórum höggum á tveimur holum og tapað höggi til viðbótar á sextándu braut, en Ólafur og Örn Ævar voru jafnir á fjórtándu holunni, áður en sá fyrrnefndi lenti í hremmingum.

Líkt og Ólafur Már lenti Haraldur í vandræðum á hinni frægu fimmtándu. Þar tapaði hann tveimur höggum á meðan Örn Ævar náði fugli með vippinu góða. Þannig jókst munurinn á milli þeirra í fjögur högg og aðeins þrjár holur óleiknar. Á sautjándu flöt setti Örn síðan punktinn yfir i-ið með því að renna um átta metra pútti niður fyrir fugli.

Eftir það var ljóst að einu sætin sem barist var um var hið annað og þriðja, þótt Örn Ævar hefði ekki beinlínis lokið átjándu holunni með glæsibrag, en hana lék hann á sex höggum. Haraldur varð annar á sjö yfir pari og Björgvin Sigurbergsson skaust upp í þriðja sætið, höggi þar á eftir, en hann lék á pari í dag eins og félagi hans í Keili, Úlfar Jónsson, sem varð í 8. - 10. sæti. Tryggvi Pétursson átti hinsvegar besta hring dagsins, 69 högg.