Karlalið Íslands skipað Ólafi Má Sigurðsyni, Kristinni Árnasyni, Ottó Sigurðssyni og Sigurpáli Sveinssyni hefur ekki gengið eins vel og piltunum. Það er í 4.sæti eftir 2 daga. Ólafur Már er búinn að leika best og er á parinu, var 2 undir eftir fyrsta daginn, svo kemur Sigurpáll sem er +5 var -1 seinni hringinn, þar á eftir kemur Kristinn Árnason +9 og svo síðast Ottó Sigurðsson +13.
Ég vona bara að þeim gangi vel síðasta hringinn því munurinn er ekki mikill á milli liða. Ísland er einu höggi á eftir Dönum, 4 höggum á eftir Norðmönnum og 7 höggum á eftir Finnum sem leiða mótið með 3 höggum.
Þú getur séð stöðu allra liða í mótinu <p><a href="http://golfpiste.com/pm2001/leaderboard/index.asp?sarjaID=5&amp;Teams=1&amp;lang=en">hér.</a></p