U.S. Open U.S. Open byrjar á morgun og lýkur á sunnudaginn, sýnt verður beint frá mótinu á Sýn á laugardag og sunnudag. Það kemur ekki mjög á óvart að Tiger Woods er talinn sigurstranglegastur og eru veðbankar sem ég hef skoðað með líkurnar 11/10 á að hann vinni, semsagt ef maður leggur undir 1000kall þá græðir maður 100kall ef hann vinnur. Phil Mickelson sem er annar á heimslistanum er með líkurnar 16/1. Ég gæti trúað því að Sergio Garcia verði í toppbaráttunni á þessu móti. Hann hefur verið að spila vel undanfarið og vann m.a. sitt fyrsta mót á bandarísku mótaröðinni fyrir stuttu.

Þeir sem ég spái að verði í toppbaráttunni

1. Tiger Woods
2. Sergio Garcia
3. David Duval
4. Ernie Els
5. Thomas Bjorn
6. Vijay Singh
7. Phil Mickelson
8. Jim Furyk
9. Justin Leonard
10. Jesper Parnevik
jogi - smarter than the average bear