Nú er komið í ljós hverjir komust áfram i íslandsmótinu í holukeppni en eftirfarandi munu mætast á morgun:

Karlar
Leikur 1 kl. 08:30 Haraldur Hilmar Heimisson GR gegn Ingvari Karli Hermannssyni GA.

Leikur 2 kl. 08:40 Kristinn Árnason GR gegn Ómari Halldórssyni GA.

Leikur 3 kl. 08:50 Þorsteinn Hallgrímsson GR gegn Sigurpáli G. Sveinssyni GA.

Leikur 4 kl. 09:00 Magnús Lárusson GKj gegn Ottó Sigurðssyni GKG.

Leikur 5 kl. 09:10 Guðmundur Sveinbjörnsson GK gegn Erni Ævari Hjartarsyni GS.

Leikur 6 kl. 09:20 Helgi Birkir Þórisson gegn Sigurði Péturssyni GO.

Leikur 7 kl. 09:30 Björgvin Sigurbergsson GK gegn Hjalta Atlasyni GR.

Leikur 8 kl. 09:40 Ólafur Már Sigurðsson gegn Heiðari Davíð Bragasyni GKj.

Konur.
Aðeins einn leikur er í fyrri umferð hjá konum og hefst hann kl. 09:50 þar sem Tinna Jóhannsdóttir GK mætir Örnu Magnúsdóttir GL.