Síðustu helgi var fyrsta stigamót Toyota mótaraðarinnar í golfi. Spilaðir voru 3 hringir og stóð Björgvin sigurbergsson uppi sem sigurvegari en hann endaði á pari. Örn Sölvi Halldórsson endaði í 2.sæti en Heiðar Bragason varð 3. eftir bráðabana við Ólaf Má Sigurðsson og Sigurpál Geir Sveinsson. Í kvenna flokki vann Ólöf María Jónsdóttir en Ragnhildur Sigurðardóttir varð önnur 7 höggum á undan Herborgu Arnarsdóttur. Helgina 2-3 júní verður fyrsta stigamót unglinga haldið á Golfklúbbi Suðurnesja og vonandi verður góð mæting þar!