Ég var að spila Korpuna á Sunnudaginn var og völlurinn er bara kominn í mjög gott stand. Grínin eru bara orðin mjög góð þrátt fyrir svolitla bleytu á vellinum. Opnunarmótið var á laugardaginn og var þáttakan mjög góð, vegna skólaferðalags gat ég ekki tekið þátt. En ég frétti að þáttakan hefði verið góð og allir ánægðir með völlinn. Svo er komin betri veitingasala á Korpuna þó að hin hafi ekkert verið neitt slæm, bara allt gott við Korpuna svona í byrjun sumars:) Ég hvet alla til þess að fara fljótlega að spila Korpuna:)