Björgvin Sigurbergsson, GK, hefur forystu í meistaraflokki karla að loknum þriðja keppnisdegi á Landsmótinu í goli sem nú stendur yfir á Akureyri. Björgvin, sem er núverandi Íslandsmeistari, hefur þriggja högga forystu á Harald H. Heimisson sem er í öðru sæti. Keppni lýkur á morgun, sunnudag.