Skotinn Colin Montgomerie hóf keppni á breska Masters-mótinu í golfi með glæsibrag í dag. Hann lék fyrsta hringinn á 64 höggum, eða átta höggum undir pari vallarins, en Mark McNulty, sem einnig lék frábærlega í dag, var annar á 65 höggum. Vallarmetið á Woburn vellinum er 63 högg og hjó Montgomerie því afar nálægt því.