David Duval meiddur
Bandaríski kylfingurinn David Duval á við meiðsli að stríða um þessar mundir og hefur hann þurft að draga sig út úr keppni fyrir vikið. Duval sem er í sjöundi sæti á heimslistanum, hefur kennt sér mein í ristinni. Hann stendur auk þess í stórræðum þessa daganna í dómssalnum, en það vakti ekki mikla hrifningu hjá golfvöruframleiðandanum Titleist þegar Duval sagði skilið við Titleist og gekk til liðs við Nike.
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.