Enski kylfingurinn Lee Westwood vann opna skandínavíska meistaramótið sem lauk í Svíþjóð í dag. Westwood lék völlinn á pari í dag en endaði 14 höggum undir pari á 270 höggum, þremur höggum á undan Ný-Sjálendingnum Michael Campbell. Skotinn Raymond Russell varð þriðji með 274 högg.