Woods lauk fyrsta hring sínum á 67 höggum Af þeim kylfingum sem komnir eru í hús á fyrsta degi Opna breska meistaramótsins í golfi, leiða Tiger Woods og Steve Flesch á 67 höggum. Woods lék mjög góðan hring í dag, hann fékk 5 fugla og fór hinar holurnar á pari. Áhugamaðurinn Ian Garbutt lék vel í dag, þegar hann var búinn að leika 12 holur, var hann á 7 undir pari, en fékk 3 skolla á síðustu sex holunum og kom í hús á 68 höggum.