Pabbi minn fékk bók í jólagjöf eftir Stephen King sem heitir Draumagildran og fremst í bókinni standa fyrirsagnir um geimskip og geimverur t.d. stóð:

Úr East Oregonian, 25. júní 1947:
SLÖKKVILIÐSMAÐUR SÉR “FLJÚGANDI DISKA”
Kenneth Arnold sá 9 kringlótt fyrirbæri
“þau vorugljáandi, silfurlit, fóru ótrúlega hratt”

og svo önnur:

Úr Chicago Daily Tribute, 1. ágúst 1947:
SÝN ARNOLDS “ÓÚTSKÝRД, SEGIR FLUGHERINN
850 óútskýrð fyrirbæri síðan hið fyrsta sást

Þetta var það fyrsta en það eru fleiri en ég ætla að skrifa niður það eru samtals 22 fyrirsagnir en svo er talað um rautt gras:

Úr Roswell (N.M.) Daily Record, 10. október 1947:
SVOKALLAÐ “GEIMHVEITI” HREKKJABRAGÐ,
SEGIR REIÐUR BÓNDI
Andrew Hoxon segir rauðleitt hveiti vera hrekkjabragð, ótengt “fljúgandi diskum”

Úr Oklahoman, 22. júní 1965:
“ANNARLEGUR GRÓÐUR” HREKKJABRAGÐ,
SEGIR FULLTRÚI BÆNDASAMTAKANA
“Rauður gróður” sagður litaður af unglingum mep úðabrúsa

þetta er dálítið skrítið svo koma aðrar fyrirsagnir eins og:

Úr Nacional í Brasilíu, 8. mars 1957:
EINKENNILEGT LOFTFAR BROTLENDIR Í MATTO GROSSO
TVEIMUR KONUM ÓGNAÐ NÁLÆGT PONTO PORAN!
“Við heyrðum ýlfur og væl inni í því,” segja þær

Úr Nacional í Brasilíu, 12. mars 1957:
HRYLLINGUR Í MATTO GROSSO!
Sagnir um gráa menn með feiknastór svört augu
vísindamenn hrista höfuðið! Sögunum linnir ekki!
ÞORPSBÚAR SKELFINGU LOSTNIR!

Úr Courier Journal (Ky), 8. janúar 1948:
HÖFUÐSMAÐUR FERST Í ATLÖGU AÐ FFH
Síðustu orð Mantells: “Málmkennt að sjá, ógurlega stórt”
Flugherinn verst allra frétta

ég nenni eiginlega ekki að skrifa meira en þetta er helvíti skemmtilegt að lesa um þetta

Ég fékk þetta bara beint upp úr bók (ekki í réttri röð) en þeir sem að vita kannski um einhverja heimasíðu geti látið vita um hana.