Ég var staðsettur fyrir norðan , réttara sagt á Heggstaðanesi, þar gisti ég ásamt konu minni á sveitabæ.
Mér hafði verið sagt að reimt væri í húsinu. Það væri gamall ættingi sem gisti í kjallara hússins…ekki fannst mér það nú mikið tiltökumál og fór óhræddur að sofa ….zzzzzzzzzzzzzzz, svo um miðja nótt fæ ég heimsókn .
Ég vakna við kulda á bakinu og mikla gæsahúð, það var eins og vægur en samt ískaldur vindgustur læddist um bakið á mér. Ég varð helv.. hræddur og þorði ekki að opna augun, heldur kurrði þétt að konunni og kallaði nafn hennar, hún vaknar og á sama tíma hvarf kuldin og öll hræðsla gufaði upp umleið.
Um morgunin sagði ég heimafólkinu frá atburðum næturinnar.
Kom bros á liðið og sagði mér að “ hann ” hefði nú bara verið að forvitnast…

Wierd [censored] does happen.. TRUE STORY.