Síðan fyrstu pláneturnar mynduðust í vetrarbrautinni er liðið ca. 12,5 milljarðar ára, síðan jörðinn myndaðist er ca. 4,55 milljarðar ára(+/-1%). Þetta þýðir að ef lífið sem er á jörðinni hefur myndast og þróast á svipuðum hraða og það myndi gera á hvaða earth-like plánetu sem er og til sé nóg af earth-like plánetum þá væri allar líkur á því að til væru human-like siðmenningar út um alla vetrarbrautina. Út frá þessu mætti þá álykta að til værur allmargar human-like siðmenningar sem væru eldri en 7 millljarðar ára (siðmenning mannsins er sögð c.a. 7000 ára). Miðað við það sem við vitum núna þá væri hægt að fara yfir á aðra plánetu í öðru sólkerfi sem væri earth-like, byggja hana mannlífi og fara svo á aðra plánetu þaðan á nokkrum þúsundum ára. Með þessu áframhaldi væri búið að siðmennta alla vetrarbrautina á mun styttri síma en 7 milljörðum ára. Miðað við hvernig gengur með SETI þá er þetta ekki staðreyndin. Útfrá þessu má álykta að eitthvað að ofantöldu er ekki staðreyndin þ.e. að mjög ólíklegt er að human-like siðmenning sé annarstaðar í vetrarbrautinni að finna.