Atlantis var aldrei til. Þetta er tilbúningur Platons. Platon skrifar söguna um Atlantis í samræðum sem heita Tímajos og Krítías (sem er ókláruð). Hver sem les samræðurnar sér strax að þetta er tilbúningur.

Samkvæmt sögunni var Atlantis eigi að síður í Atlantshafi. Ekki í miðju Atlantshafi eins og einhverjir hér halda fram, heldur rétt fyrir utan Gíbraltarsund (Súlur Heraklesar). Eyjan á að hafa verið á stærð við Asíu og Lýbíu saman (þ.e. Litlu Asíu og Lýbíu). Það er enginn séns að slík eyja hafi verið fyrir utan Gíbraltarsund.

Eyjan sem sökk í hafið er Santorini (Þera) í Eyjahafi fyrir norðan Krít. Hún sökk reyndar alls ekki neitt heldur sprakk í gífurlega öflugu sprengigosi sem olli flóðbylgjum nægilega stórum til að rústa allri menningu á Krít um langan aldur. En kveikjan að sögunni um sökkvandi eyju er þar. Önnur kveikja að sögunni er auðvitað Egyptaland, sem á tíma Platons var horfið stórveldi.

Sagan sem Platon segir er sem sagt samsett úr mörgum þáttum sem hann hafði heyrt um og vissi af. En það er út í hött að benda á eitthvað eitt atriði úr sögunni hans og láta eins og það sé Atlantis sem hann var að tala um. Ef ég segi sögu um bandarískan forseta sem var við völd á styrjaldartímum, var í hjólastól, varpaði kjarnorkusprengju á aðra þjóð og sagði af sér, þá er út í hött að láta eins og ég sé að tala um Roosevelt. Hann var í hjólastól (um tíma a.m.k.) og var forseti um styrjaldartíma eins og reyndar Harry S. Truman og Richard Nixon. En Truman sem varpaði bombunni sagði ekki af sér og var ekki í hjólastól og Nixon sem sagði af sér var ekki í hjólastól og varpaði ekki bombunni. Það er ekki hægt að láta eins og einhver einn þeirra sé forsetinn sem ég er að tala um.

Tilgangur Platons með sögunni um Atlantis er óljós og vekur ekki gífurlegan áhuga fræðimanna eða mikla athygli. Hins vegar kom fram túlkun á þá leið að hann væri að setja fram samfélagsgagnrýni (enda er Tímajos nokkurs konar framhald af Ríkinu og Krítías framhald af Tímajosi). Þá myndu bæði Aþena og Atlantis tákna Aþenu en á mismunandi tímum. Atlantisbúar (sem eru vel að merkja vondu gæjarnir í sögunni) tákna þá Aþenu samtíma Platons sem var orðin spillt og löstug; hin fátæka Aþena í sögunni táknar þá skv. þessari túlkun dyggðum prýdda Aþenu 5. aldar f.Kr. sem sigraði Persa við Maraþonsvelli.
___________________________________