Erum við ein? Ég trúi því ekki. Ég get ekki trúað að við séum einu lifandi verurnar í þessum stóra alheimi. Og ég skil ekki fólk sem trúir ekki að það sé líf þarna úti(er ekki að reyna að móðga neinn, bara mín skoðun:))
En ég trúi samt ekki að það séu einhverjar grænar verur með risastór svört augu. Ég trúi að það séu til verur sem eru gáfaðari en við og eru ekki svona gráðugar og illar eins og við mennirnir. Ég er ekki að segja að allar manneskjur séu vondar alls ekki. Ég er bara að segja að mér finnst mannkynið vera alltof gráðugt og ég held að við munum drepa okkur úr okkar eigin græðgi. En ég held að þegar að heimurinn okkar verður orðinn mjööög illa staddur að þær muni koma og hjálpa okkur mannkyninu. En þetta er bara það sem ég trúi á :). En ég trúi samt líka að það séu til verur sem eru gráðugri og verri en við.
En hvernig haldið þið að þessar verur séu(þið sem trúið að þær séu til) og hvernig haldiði að þær séu?

[Bara reyna að búa til eitthvað ,,smotterí" til þess að tala um ;)