Fyrir svona 10-15árum vissu menn ekki hvernig Cropcicles urðu til og voru þá uppi hugmyndir um að geimverur væru að verki. Og afhverju héldu menn það? Jú það sem olli heilabrotum var sú nákvæmni sem lá á bakvið gerð þessara listaverka og var því talið að ómögulegt væri að menn gætu búið þetta til.

Hinsvegar komst svo loksins upp að þarna voru menn að leik og var sýnd heimildamynd í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum um gerð þessara hringja og sýndu þessir menn þær aðferðir sem þeir notuðu við að gera þá.