Ég ætla hér að koma með smá saman tekt sem ég ef gert á þessari merku herstöð þeirra Bandaríkjamanna og hér kemur þetta:

Það þekkja nú líklegast allir Area 51. Þennan stað mætti kalla leynilegasta stað á jörðinnni. Þótt svo að Bandaríkja stjórn fullyrði að þetta sé bara staður til þess að prófa nýjar tengundir flugvéla, þá eru nú ekki allir tilbúnir að trúa því. Fólk heldur því fram að þarna séu geymdir margir óútskýranlegir hlutir eins og geimverur og geimskip. Margt fólk telur sig meira að segja hafa séð skrýtin loftför taka af stað og fleira yfirnáttúrulegt. Það hefur en ýtt undir sögusagnir að þarna fari fram eitthvað vafasamt þ´vi að svæðisins gæta vopnaðir hermenn og sá sem fer inná svæðið í leyfisleysi á yfir höfði sér sekt uppá 5000 $ og jafnvel dvöl í fangageymslu. Á ári hverju flykkjist fólk til smábæjarinns Rachel sem er mjög nálægt Area 51. Í bænum eru tvö kaffihús og þaðan er ferðamönnum fylgt til útsýnis staða þar sem fólk fullyrði að hægt sé að sjá geimskip taka á loft. En þarna er ekki aðeins herstöð þar sem sett eru á stað ‘’geimskip’’ heldur er þarna líka gerðar ýmsar tilraunir á hersvæði sem er á stærð við Sviss þarna eru gerðar tilraunir með kjarnorku sprengjur. Einnig eru til sögusagnir um að undir stöðinni neðanjarðarbyrgji á 38 hæðum þar sem geimverur sem hafa strandað á jörðinni geymdar í frysti. En í þessari byggingu eiga einnig að vera vísindmenn sem einrækta fólk og verur sem eru að hálfu menn og að hálfu geimverur. En hvorki er hægt að sanna né afsanna neitt um þessar kenningar því að herinn hleypir engum inná á svæðið, herinn neitar þó að þarna fari nokkuð fram nema tilraunir með flugvélar annað slíkt af þessum heimi. En annað til þess að ýta undir þessar sögusagnir er eðlisfræðingur að nafni Bob Lazzar sem hveðst hafa unnið í stöðinni við þróunn nýrra flugvéla en yfir völd í Bandaríkjunum segja hann bara vera að búa þetta til því að hann hafi engan veginn næga menntun til að fá starf við þróun flugvéla og að prófskýrteni hans hafi verið fölsuð. Bob heldur því hinsvegar fram að ríkið hafi bara afmáð hann úr ríkisskrám til að enginn myndi taka mark á honum.

Vona að þið hafið haft gaman að þessum pistli mínum
p.s þetta var verkefni fyrir skóla