Mér finnst að Íslenska þjóðin ætti að vera með Area 51. Það myndi koma sér mjög vel í baráttunni við geimverur ef við lendum á móti þeim. Síðan þegar vísindamennirnir eru búnir að rannsaka hlutinn gríðarlega, geta þeir selt aðgang að þeim og aukið ferðamannastrauminn til landsins nema þeir í Area 51 í Bandaríkjunum geri það fyrst. Við verðum að vera á undan öðrum þjóðum í þessu og fleiri málefnum. Þannig tryggjum við íslenskt efnahagslíf og þurfum ekki lengur á þessum leiðinlega fiski að halda sem flestallir eru þreyttir á. Það þarf ekki endilega að heita Area 51 en ég er opinn fyrir öllum uppástungum.