Vinur minn er geimvera og ég veit ekki hvað ég á að gera. Hann á heima rétt hjá st0ðuvatni og nærist á hornsílum allt sumarið, ég komst að þessu í vor og er hálf hræddur að vita hvað hann ætlar að borða í vetur þegar vatnið frýs og hann nær ekki í sílin. Hann er frekar vinsamlega geimvera þó hann sé enginn ET… reyndar grunar mann að hann hafi verið sendur til jarðarinar í útlegð því hann er álíka mikill klaufi og jar jar binks og minnir mann óneitanlega á hann stundum.

Hvað á ég að gera?

A) Hringja í 112?
(nenni því ekki!!! þú þarft að tala við símsvara í 10 mín)
B) Fara niður á stöð?
(þeir færu sennilega að hlæja að mér)
C) Finna mér leið til að drepa hann áður en hann étur öll hornsílin í rauðavatni?
(helst ekki… hann á bíl en ekki ég og ég nenni ekki í strædó í skólann)
D) Senda hann í afhommunarmeðferð í Krossinum?
(Krossinn er sennilega ekki búinn að lýsa því yfir að geimvera sé sjúkdómur eins og samkynhneigð)
E) Reyna lifa í sátt og samlindi?
(en hvað gerist í vetur þegar hann fær ekki hornsílin sín?)

Vinsamlegast komið með fleiri hugmyndir.


Dónt step on the grass!!! smoke it.