Til er jú Íslensk kona sem segist vera í sambandi við geimverur og býr hún á Akureyri.Þessi kona segist vera búin að vera í sambandi við geimverur í nokkur ár núna og heyrði ég þessa sögu hjá Magnúsi Skarphéðinssyni (hverju öðrum).Magnús hefur oft spjallað við hana um þetta og hún hefur sagt honum margar sögur.Þetta gerist víst alltaf á nóttinni og maðurinn hennar verður ekki var við neitt á meðan.Eitt sinn tóku þær hana og ætluðu að sýna henni einhvern dulin heim og settu hana í búning og læti.Þegar hún var að stíga um borð í geimfarið rakst hún í kannt og rifnaði búningurinn og fékk hún mikið sár á sig.Hún komst því miður ekki í þessa ferð í þetta skipti en það skrýtnasta við þetta að þegar hún vaknaði var þetta sár á hendinni á henni og maðurinn hennar skildi ekki upp né niður í einu.Það hefur verið reynt að setja upp videupptökuvél í svefnherberginu hennar en þegar það er gert þá láta verurnar aldrei sjá sig og er því ekki gegnþétt sönnun um það að þessi kona sé í sambandi við geimveruru.En náttúrulega þeir sem trúa fast ættu að trúa þessu.