Íslenskir UFO Hotspots? Ég hef heyrt tvennt frændfólk úr sitthvorri fjölskyldu minni tala um sitthvort skiptið þar sem það komst í tæri við UFO. Í annað skiptið voru það skær ljós niðri í fjöru þegar verið var að reka kindur, og minnisleysi daginn eftir (einungis þeir sem sagt hafði verið frá viðburðinum mundi það) og svo undarleg för eins og einhvað hefði lent uppá hálendi þegar verið var í gæs.

Þessir tveir aðilar tala sjaldan eða aldrei um þetta og mér tókst bara að fiska söguna upp yfir kaffibolla annarsvegar og bjór hinsvegar.

Veit einhver um að til sé á prenti einhver útlistun á stöðum þar sem sést hafi til UFO á Íslandi, eða kort?
Þetta er fríið þitt. Þegar þú deyrð þarftu að mæta í vinnuna aftur.