Ég kom heim klukkan 6 um morguninn eftir verslunarmannahelgina. Ég drakk mjög mikið áfengi og skemmti mer konunglega.
Sofnaði fljótt eftir að ég kom heim en vaknaði svo fljótlega aftur….! ég lá á maganum með hendurnar að hluta undir líkamanum. Ég vaknaði við einhvern þunga ofaná mér, líkast því að einhver sæti ég lægji ofanámér. Ég gat ekki hreyft hendurnar sem voru ótrúlega máttlausar og dofnar einhvernveginn, en ég fann hvernig þeim var haldið. ég huxaði bara, “OMG, hvað er að gerast” og þá heyrði ég þungann óhugnarlegann andardrátt einhverrar skepnu eða manneskju og ég var að tryllast en reyndi samt ekkert að brjótast um. svo alltíeinu dofnaði þetta upp og hvarf. ég gat reist mig upp og litið í kringum mig en enginn var þar?? heyrði engin hljóð eða neitt. Ég sofnaði svo aftur og vaknaði nokkrum sinnum enn og voru hendurnar þá líka máttlausar en enginn önnur ofskynjun, það var það sem þetta var. Ofskynjun!! eða það held ég. þó ég viti ekki alveg hvað það er. En þetta hefur ekki gerst síðan. Vinnufélagi minn sagði mér að einhver vinur hans hefði lent í einhverju svipuðu eftir einhvað rosalegt fyllerí, nema þá : sá, fann, og heyrði sá gaur í pöddum sem þöktu líkama hans. :) kanski svipað, en samt?…

einhverjar skýringar?
er ég geðveikur?
eða er þetta hvað…