Margir hafa líklega velt því fyrir sér hvernig í ósköpunum transmiðlarnir fara að þessu að lána líkama sinn einhverjum öðrum.Eitt sinn fór ég á transmiðilsfund og er það eitt það geggjaðasta sem ég hef nokkurntímann upplifað.Fyrst byrjaði miðillinn að kynna sig og segja frá sér og svo datt hann út og saup hveljur alveg hægri vinstri.Eftir skamma stund var maður að troða sér inní líkama hans sem kemur alltaf í líkama hans þegar miðilsfundir eru.Það sem miðlarnir gera er það eitt að fara með sálina útúr líkamanum sínum og fara bara á flakk á meðan annar notar þeirra líkama.Þetta er að sjálfsögðu erfitt fyrir miðlana og að sjálfsögðu mjög erfitt fyrir sálinar sem stundum eru að koma í fyrsta skipti í líkama eftir að þeir dóu.Til dæmis kom afi minn í líkama miðilsins þegar ég var á fundi og var þetta furðulegt að sjá þetta.Hann hristist allur til og var síþreyfandi á sér öllum og var að finna bara hvað væri skrýtið að koma í líkama.Hann talaði mjög óskýrt en samt var hægt að skilja hann.Eftir þennan fund var ég gjörsamlega frelsaður og hélt áfram að lifa mínu “eðlilega” lífi en gleymum því ekki að það eru sálir að gæta okkar og hjálpa og erum við því ekki ein þegar við höldum það.