ok, ég trúi að geimverur séu til, við erum ekki ein í þessum stóra
alheimi…

Ég hef séð 3 geimskip um ævina og eitt skipti tel ég mig hafa jafnvel farið inn í geimskipið..

1 fyrsta skiptið sem ég sá geimskip:
Ég var á leiðinni til Villu og lít ekkað upp í himinnin og þá sé ég allt í einu ekkað svífandi furðuhlut svífa furðu hratt á eftir mér og
ég varð drulluhrædd og hljóp til Villu..

2.Skiptið sem ég sá geimskip:
Ég var á balli í Grundarskóla, upp á Skaganum… Og ég var að ganga að tölvustofunni
þegar ég sé geimskip fyrir utan gluggan í tölvustofunni(sko það var glært gler, þannig að ´maður sá inn í tölvustofuna) og
ég gjörsamlega fraus í sporanum.. Og lít til hliðar, og svo aftur á gluggan þar ´sem ég hafði séð geimfarið, en þá var það horfið!

3.Skiptið sem ég sá geimskip:
Ég var að leiðinni heim úr skólanum og allt í einu heyri ég drunur og hávaða, og þegar ég lít
upp þá sé ég risa risa stórt geimskip, stutt frá mér og það færðist nær mér(ég stóð frosin)
og ég sé að það er jafn stórt og skemmtiferða skip, nema það er kringlótt og margir gluggar voru á geimskipinu
. Ég man bara eftir því að það kom mjög nálægt mér, og ég held að það hafi meira segja lennt, en það næsta sem ég man eftir að allt
í einu var það komið langt í burtu. Og ég hljóp heim. Það var enginn á ferli þegar þetta skéði nema ég. Svo ég held að
það hafi engin vitni orðið að þessu.
Miss mistery