Ég las góða grein um konu sem hafði verið brottnumin.Hún var sofandi þegar þetta gerðist og þegar hún var komin uppí “skipið” þá var hún fest niður og var verið að fara að gera rannsóknir á henni.Konan sagði að enginn af geimverunum hefði talað en hún gat skilið hvað þeir voru að segja við hana með huganum (frekar þægilegt).Hún náði sambandi við eina geimveruna og spurði af hverju þeir væru að þessu við hana,þvi að hún hefði ekki gert neitt vont af sér sem hefði þær afleiðingar að hún verðskuldaði þetta.Þá svaraði geimveran “þú ert nú bara heppinn hvað við erum að gera við þig miðað við hvað þið mannkynið eruð að gera við dýrin á jörðu niðri”.Það er gaman að vita það að við erum sjálf skepnur hérna á jörðu niðri.