Það virðist greinilega vera að ef að ég geri ekki greinar að þá er ekkret um greinar. Ég vil endilega að þið skrifið meira af merkum greinum til að frjófga huga minn sem aðra. Því að ég né aðrir vita allt. Plís sendið inn fullt af greinum um bara eitthvað sem tengist ufos. Mér finnst greinin hérna fyrir neðan mjög fín og þá líka hjá þeim sem svara fyrstur henni. Þetta eru greinilega menn sem vilja láta gott af sér leiða og maður græddi þarna smá víðsýni.
Fyrir utan þetta þá hef ég verið að fylgjast með greinunum hérna og það er rosalega lítið flæði á þeim inn. Það sem að við þurfum að gera er að koma með fleiri greinar og ekki þá eitthvað bull um að Michael Jackson sé geimvera eða eitthvað álíka því að það vita allir;) Ef þið hafið bara eitthvað sendið það ef það er spurning þá sendið það. Ég er t.d. með eina ég hef pottþétt séð fljúgandi furðuhlut en hvort hann er af þessari plánetu eða annari veit ég ekki. Það var bara rautt ljós sem sikk sakkaði og fór fram og aftur. Vinur minn var einnig vitni af þessu þannig að þetta er ekki bara ÉG. Ég sá þennan hlut og hvað haldið þið að þetta sé!?