ok það vita örugglega flestir að við sendum radiosendingu að stjörnu sem kallast alpha centauri þá langar mig að varpa fram einhverjum hugmyndum um það.
Í fyrsta lagi er líf á alpha centauri.
2 er það þróað líf.
3 geta þeir tekið við radíó sendingu.
4 ef svo er afhverju ættu þeir að svara okkur.
Nei mar veit aldrei þeir gætu svarað, þeir gætu látið þetta sem vind um eyru þjóta. Þeir gætu reynt að gera innrás og þeir gætu verið vinir. Þetta er svona örlítil pæling sem mig langaði að deila með ykkur. Svo þoli ég ekki þegar einhverjir segja að geimverur eru þróaðri en við(Fer það ekki eftir hvaða geimverur við erum að tala um) og líka þróaðri í hverju? líkamlega, andlega, tæknilega?? eða einhverju öðru sem við erum ekki búin að öðlast skilning á. Svo er það hitt geimverur munu ekki gera árás af því að þær eru þróaðri en við. Eins og maðurinn hafi einhvað skánað í gegnum tímana ég meina hann telur sig hafa þróast svo mikið. Og þar eru bandaríkjamenn fremstir telja sig svo þróaða en hafið þið kynnst bandaríkjamönnum og svo var Bush kjörinn forseti. Var hann það besta sem bandaríkjamenn eiga í valdamesta embætti þeirra.
Annað dæmi síðari heimstyrjöldin þar var háþróaðasta þjóðin sem var að gera árás á aðrar (þjóðverjar) hvaðan haldið þið að þotan, skriðdrekarnir, stórskotaskipin, kafbátarnir og eldflaugarnar hafi komið. EINMITT ÞJÓÐVERJUM!! ef þeir voru svona þróaðir afhverju voru þeir þá að gera styrjöld. Afhverju var hvítimaðurinn að taka svarta þræla ef hann var svona þróaður og afhverju er sama sagan að endurtaka sig aftur og aftur. Svar = einstaklingurinn það eru enstaklingarnir sem eru að skipta máli í þessu afhverju geta geimverur þá ekki verið eins og við, geta þær ekki verið einstaklingar eða er þetta forritað í þær. Ég er ekki að segja neitt það eina sem ég er að segja er pælið í þetta frá öllum sjónarhornum en ekki einu.