Þetta gerðist í Missouri í Bandaríkjunum árið 1976. Hjón voru á leiðinni heim til sín á bíl. Þau sjá ljós á himninum sem er of bjart til að vera stjarna, þau stíga útúr bílnum og líta á þetta ljós, sjá þau greinilega að þetta ljós er að stækka, eða færast nær þeim. Eftir svolitla stund er þau farinn að sjá kringlótttan hlut sem er ekki með eitt heldur mörg sterk ljós á sér og þau sjá að hann færist nær. Nú er hann kominn það nálægt að þau gátu svarið að hann var aðeins nokkra metra frá þeim. Skyndilega kemur eins og stór björt sprenging og þau blindast í örfáar sekúndur þegar að þau “ránka” við sér er farið horfið. Keyra þau áleiðis í þeirri trú að þetta hafi ekki getað verið neitt annað en geimskip. Líða örfáir dagar frá því sem þau sáu og er þá bankað á dyrnar hjá þeim og fer maðurinn til dyra. Stendur þar lítill maður, náfölur og í svörtum fötum, svörtum buxum og svörtum jakka og segir honum að gleyma því sem hann sá og gengur svo í burtu. Maðurinn tekur ekki mikið mark á því sem hann sagði og er nú ekki auðvelt að gleyma hlut sem slíkum bara sísvona. Tveimur dögum eftir komu svartklædda mannsins byrja undarlegir hlutir að gerast, kviknar og slökknar á sjónvarpinu, úr stoppa og byrja að ganga, og hlutir hreyfast úr stað án þess að þeir séu snertir. Það kviknar á sjónvarpinu þó að það hafi verið tekið úr sambandi. Nákvæmlega tveimur mánuðum eftir að þessir hlutir gerðust kemur svartklæddi maðurinn aftur nema að núna er hann með öðrum svartklæddum manni, báðir er þeir hræðilega litlir, eins og þeir hafi skroppið saman, náfölir og líta ekki einu sinni út fyrir að geta haldið sér uppi líkt og þeir þoli ekki þyngdar afl jarðar. Halda hlutir áfram að færast úr stað, úr og klukkur staðna og byrja að slá aftur. Einu og hálfu ári eftir að maðurinn sá hlutinn á himninum þurfti hann að gara til New York og getur hann þá svarið að hann sá sama svartklædda mannin, lítandi nákvæmlega eins út, lítill og náfölur, starandi á sig með fremur illu augnaráði. Stuttu eftir ferð mannsins hættu hlutirnir að hreyfast úr stað og klukkurnar að stoppa……

Þó hefur maðurinn séð svartklædda manninn oft eftir þetta og lítur hann en alveg eins út lítill og fölur, starandi á sig. Þetta er ekki eina tilfellið sem að fólk segir frá svartklæddum mönnum sem að fylgist með því eftir að það hefur talið sig hafa séð geimskip.
“There is no need for torture, hell is other people.”