fyrir nokkrum dögum sendi ég (eða taldi mig senda) inn grein þar sem ég lýsti því yfir að búið væri að brjóta ljóshraðatakmörkin. greinin virðist sem fyrr segir ekki hafa komist til skila, og svo birtist þessi sama frétt í Morgunblaðinu. Þar með fór minn eini séns í lífinu að verða fyrstur með fréttirnar.
en þrátt fyrir þetta misheppnuða gáfnafarsstærilæti mitt ætla ég að halda áfram að berjast fyrir þessari tímaflakkshugmynd.

ég VIL trúa, og trúi þessvegna staðfastlega, að einhverntímann verði hægt að, ef ekki ferðast um tímann, þá allavega sjá hann, með því að láta ljósið “grípa” mynd fortíðarinnar, svona eins og við sjáum ljós frá stjörnunum eins og það var fyrir milljónum ára, og að það verði hægt að vinna úr þessum “ljósmyndum”, þannig að við gætum hugsanlega skoðað fortíðina, þó svo við gætum ekkert gert við henni. er þetta möguleiki… einhver?
-I don't really come from outer space.