Oftast þegar fólk segist hafa séð eitthvað utan úr geimnum er það fljúgandi diskur. En ég held bara að þetta sé algert rugl og vitleysa sem fólk hefur spunnið upp til að fá athygli. Múgurinn er svo auðtrúa að núna halda allir að geimverur séu með stór augu og koma með fljúgandi diskum. Þegar fólk er að ljúga segist það alltaf hafa séð disklaga geimskip, þetta er nú orðið soldið þreytt.

Það væri nú fyndið að geimverurnar myndu nú loksins koma hingað á jörðina og þær væri bara alls ekki í fljúgandi diskum heldur í sívalningslaga gufugeimskipum. Og síðan myndu mörg þúsund litlir dvergar stíga út úr geimskipinu.

Hvers vegna ættu geimverurnar að koma einmitt núna ef þær hafa ekki komið í mörg milljón ár?
Gleymum ekki smáfuglunum..