Í svona óbeinu framhaldi af umræðunni vil ég kasta þessu inn. Hvernig haldið þið að geimverur líti út? Eru geimverurnar með tvo handleggi eða fjóra eða sex? Tvær lappir, þrjár, fjórar? Er líklegra að þær séu eins og skordýr eru þær eins og við?

Ég sá einhvern tímann þátt um hvernig geimverur litu hugsanlega út og þar var gengið að því vísu að:
a) Verurnar hlytu að vera samhverfar, þ.e. eins og við erum (önnur hliðin spegilmynd af hinni)
b) Verurnar hlytu að vera með eitthvað sem getur kallast heili, eitthvað sem stýrir þeim
c) Verurnar hlytu að geta tjáð sín á milli flóknar hugmyndir og hefðu þar af leiðandi einhverskonar líffæri til að koma hugmyndunum frá sér og að taka á móti þeim, þ.e. munn og eyru.

Hvað segið þið?? Hvernig geta geimverur hugsanlega litið út ?

Coby