Það eru einhvað um pælingar að faróar í gamla daga hafi notað gimsteina sem meira en annað en skraut nefnilega til að rækta sálina og hugan.
Nefnum dæmi um eitt spákona me kristallskúlu hún er aðeins móttækileg gagnvart straumum kúlunnar en stjórnar en lítið sem ekkert.
Þetta gildir eins um aðra steina svo sem demant hann á að gefa betri einbeitingu og visku aðrir steina gera þetta líka eins og labradorít, kristallar, semelíusteinar, rúbín og latídatí da. Sama má segja um málminn gull, silfur, brons, kopar, stál og fleira. En hvert þessara hluta á að gegna mismunandi hlutverki s.s. svefn, hugleiðslu, spyrna gegn fíkn og svoleiðis.
dæmi: vinkona mín er alki og er búin að vera það í 7ár fékk sér stein sem á að sporna við áfengisfíkn og hefur ekki drukkið síðan hvort þetta er steininn eða trú hennar á honum læt ég liggja á milli hluta.
Annað tígrisauga á að gefa manni meira sjálfstraust og ég á eitt svoleiðis og mér finnst það virka en hvort það er það eða bara ég og trú mín á það læt ég kyrrt liggja en það kemur á sama stað niður.
Önnur pæling.
Kærastan mín er norn í þeirri merkingu að hún getur séð allar víddir eða á að geta það nema að það er búið að loka henni með hjálp steina fleiri norna og anda. En það er ein kona sem er skyggn og hún hefur oft ruglast á fólki liðnu sem lifandi. Hún segir að geimverur hafi skoðað hana en ekki líkamlega heldur andlega. Þetta er alveg mögnuð pæling sem þið ættuð aðeins að pæla í ef það eru einhverjar tegundir af geimverum sem geta gert allt með svona fjarskynjun.
Ég álít að maðurinn eigi eftir að geta þetta og ég álít meira að segja að maðurinn hafi getað þetta áður en glatað þessu með tímanum því eins og þið vitið þá held ég því fram að maðurinn sé kominn af annari plánetu eða allavega hluti af honum og hann hafi gert sér jörðina að nýlendu.
Sjálfur hef ég prófað að reyna að fara út úr líkamanum en ekki tekist en það merkilega er að þegar maður er að reyna þá fer maður að anda skryngilega ekkert ósvipað og lokandardrátturinn síðan kemur yfir mann þessi undarlegi friður. ALVEG MAGNAÐ.
Til þess að geta þetta þá þarftu að liggja með hausinn í norður, sjá fyrir þér punkt og ímynda þér að þú sért að fara þangað án þess að nota líkamann. Prófið þetta. Þið þurfið að vera mjög léttklædd og loftið rakt. prófið þetta þegar þið farið að sofa, ekki fara langt frá líkamanum og reynið að sjá sjálfa ykkur í spegli þá sjáið þið hvað þið eruð með þroskaða sál.
Ef þið farið of langt frá líkamanum þá kemur vera og segir ykkur að fara til baka og ef þið farið lengra þá slitnar þessi silkiþráður sem tengir ykkur við líkamann og þá er það búið.
En ég mæli með því að þið prufið þetta.