Drauma Kitty <3 Þetta er Kitty mín :) Hún kemur frá Draumaræktun og er undan Lopa og Trítlu.
Kitty er loðhamstur eins og allir hinir hamstrarnir mínir, fædd 31. desember 2007.
Liturinn hennar heitir golden og er einn algengasti litur hamstra. Kitty er með fallega áferð sem kallast satin (sést reyndar ekki á myndinni). Feldurinn er þá mjög glansandi og mjúkur. Hann þynnist aðeins.
Hún Kitty mín á að gjóta ungum í dag :D, þeir gætu samt alveg eins komið í nótt eða á morgun :) Pabbinn heitir Loðholts Zorro. Hann er svartur og er undan mínum hömstrum.