Ég var að fá hund (smooth fox terrier),það er tík og hún er algjört krútt, Hún er hvít með svart höfuð, svarta depla og það er eins og hún sé í svörtum gammosíum.
Hún er algjör dekurrófa(sem ég er að venja hana af að vera)
skítur og mígur á gólfið þegar henni sýnist, sefur uppi í rúminu mínu sem ég er ekki nógu ánægð með og er stundum búin að loka hana inni í gestaherberginu með rúmið sitt.

Ég var ekki nógu ánægð með nafnið sem hún var með þegar ég fékk hana (þá var hún 5 mánaða) og það var Gríma.
Ég er eitthvað að pæla í að skíra hana Tinu en ég er ekki viss
Getiði hjálpað mér að finna nafn?