Því miður verð ég að finna ný heimili fyrir 2 af kanínunum mínum vegna fjölgunar í fjölskyldunni.

2 kk kanínur fást gefins með búrum og tilheyrandi, hvort sem er saman eða í sitthvoru lagi. Þeir eru báðir ógeldir og vanir að fara út í taum (sem fylgir líka með þeim).

Klumpur er gullinbrúnn með smá grátt í sér, mini-lop kanína, og er árs gamall. Hann er mjög kelinn og fjörugur, finnst gott að láta klóra sér og klappa og elskar ávexti. Mini-lop kanínur eru þekktar fyrir að vera mjög barngóðar.

Depill er svartur með hvíta doppu á nefinu og smá hvítt á tánum. Hann er af venjulegri kanínutegund, en þó minni. Hann er árs gamall.Gæti verið blanda af dvergkanínu. Hann er mjög forvitinn en feiminn, og er ótrúlega rólegur þegar verið er að handleika hann.

Hafið samband hér, í tölvupóstinn margretbj(at)gmail.com eða símann 822-1489

Hér eru myndir af þeim:
Klumpur:
http://a796.ac-images.myspacecdn.com/images01/128/l_06c31c7304b2916cd834c3d46694eb0b.jpg
http://a836.ac-images.myspacecdn.com/images01/126/l_92344c063bb47af1a15caf36081f34b3.jpg

Depill:
http://a766.ac-images.myspacecdn.com/images01/43/l_cc98b05a067fefb9ecaff65cffa830bd.jpg
http://a912.ac-images.myspacecdn.com/images01/61/l_a87b208e9ec13f2dbf4a4ee02747ef9f.jpg